blettur til framfara fyrir gomlu og dýrið

12.31.2004

Takk fyrir mig

Einstaklega ljúfur dagur hjá mér í dag. Talaði við kiddy í smá tima og eins og vanalega leið mér svo vel eftir það. Takk elsku systir! Sakna þess ekkert smá mikið að geta farið til ykkar og við spjallað um allt og ekki neitt og valdi lesi moggan á meðan..með kommentum :) gerist ekki heimilislegra :) Tímamót : síðasti dagur ársins í dag!!! Búið að vera einstaklega viðburgðar-ríkt, svo rosalega miklar breytingar og umskipti.. má segja á einu og öllu... bæði gott og vont.. en skemmtilegt, ljómandi, lærdómsríkt og sé ekki eftir neinu. Ég er búin að sitja hérna og stara á skjáinn og velta því fyrir mér hvað ég hef gert á árinu.. það er ekkert smá mikið... ætla í tilefni dagsins að lesa allt bloggið mitt.. þó það sé bara frá þvi í mai... þá er endalaust af skemmtilegheitum sem gaman verður að rifja upp :) Kanski fínt að ég byrjaði ekki fyrr... held að lesningin yrði frekar depressing þar sem mánuðurnir þar á undan voru ekkert nema erfiðir og það er ekkert skemmtilegt við þá. jú rugl er þetta... maður á ekki að lifa á því vonda.. heldur því góða!!! fór til dæmis í frábæra ferð um hálendin í skotlandi.. alger snilld!! var í danmerku í smá tíma....
Allavega mínir kæru! takk fyrir árið og árin. Endalaust þakklát fyrir að eiga ykkur að.

12.29.2004

Tuttugasti og níundi tólfti

jæja.. ég gerði heiðalega tilraun og fór í vinnuna! ég starði á tölvuskjáinn og tölurnar og ekkert gerðist. Gersamlega gagnslaus þannig ég ákvað bara fara í frí. Málið er bara að maður kann ekki að vera svona.. ég meina að gera ekki neitt.. þetta er alveg að taka á og maður þarf að virkilega að læra þetta. Þetta er eitthvað sem maður á að geta gert fyrirhafnarlaust!
Familian er að ná sér eftir yfirsnúninginn vegna flóðbylgjunnar og jarðskjalftanna. Þrátt fyrir að kiddy og valdi séu ekki við ströndina þa höfðum við öll áhyggjur því maður vissi ekki hversu langt þetta hafði áhrif. Einnig var ekki hægt að ná í þau og farið var að hafa áhyggjur að þau hafi farið eitthvað en engin vissi hvert. Svefnleysi og spenna hlóðs upp þannig það var mikill léttir þegar smsið kom:)
Mikið er maður litil manneskja í þessum stóra heimi. En það er ekki þar með sagt að maður geti ekki haft áhrif. Leggið ykkar af mörkum styðjið hjálparstarfið ! símin er 907 2020

12.28.2004

Skapið alveg að fara með mig

Fór ekkert smá vitlaust fram úr í morgun. Þetta hefur bara ekki gerst síðan ég veit ekki hvenær! Það er eins og ég sé með horn á hausnum. Er sem sagt afskaplega lítill pirraður einstaklingur það sem af er að degi. Verð að finna mér eitthvað kætandi. Það er svo orkufrekt að vera svona :(

12.23.2004

Jóla knús

Kæru vinir, félagar, fylgifiskar og meðfylgjandi gengi
Það hefur verið einsettur ásetningur minn að standa mig í jólakortaskrifum... eða réttara sagt að senda jólakortin sem ég skrifa til ykkar. En ekki tókst mér það þetta árið þannig ég ákvað að senda ykkur þennan knús póst í staðin :)
Okkur mæðgum langar að óska ykkur Gleðilegtra jóla og farsæls komandi árs!! Þakka kærlega fyrir skemmtilegar samveru stundir á árinu sem er að líða og hlökkum til að hitta ykkur á nýju ári :) Árið sem er að líða hefur verið einstaklega viðburðarríkt og skemmtilegt hjá okkur. Enda aldrei logn í kringum okkur mæðgur! ( smá veðurstofu brandari... hmm haha!! )
knús, krams og jólakveðja
Og til að fullkomana cornýið http://www.theinterviewwithgod.com/
Gamla og Dýrið :-D

12.22.2004


Beygla Posted by Hello


Þessi er ljomandi Posted by Hello

12.21.2004

Viðburðarríkt að vera ég!

Tennisolbogi .. það var niðurstaðan! Veit einhver eitthvað um þetta? á maður bara að leggjast í endalaust óþægilegar spelkur og býða?? já og háma í sig Ibúfen í Gullíad stærð! Fékk 0 leitarniðurstöður í minni leit! ....Gerði sem sagt ekkert í fyrri part dags nema vesenast í þessu, spelku-mátun og kaupum...og jú fór í hádegismat í miðbænum.. mest ljómandi :) En dúndur skrið á gömlu eftir það.. er alveg að massa sjálfvirkustöðvarnar á vestfjörðum... hhmm fyrir ykkur sem hafa áhuga á þvi!!!!! En mikið er erfitt að pikka meða þetta flikki á sér... eg er eiginlega meira á strikút takkanum... segir kanski svoldið um þolimæði! ... eg er amk ennþá einstaklega róleg yfir þessu.

12.20.2004

Gefst bara upp

Held að ég verði að láta læknisfræðilegu tilgátur mínar fjúka og fara til læknis. Ég versna bara og þetta er ekki sniðugt lengur. Það sem byrjaði í öxlinni er nú komið í olboga og úllið (skrytið orð). Áður en beiglan bilar þá verður maður að láta líta á sig.

12.19.2004


Dyrið í rokna stuði enda sykurmagnið í líkamanum er orðið ansi hátt á þessu stigi Posted by Hello


Kann ekki ad retta myndina vid!!! Hér er samt sem áður gengið :) Posted by Hello

Miðbæjarrölt og bli

Ég las seinni bók BJ fyrir nokkrum árum og fannst það endalaust fyndið hvernig hún afgreiddi jólakortaskriftirnar. Tók meðvitaða ákvörðun um að þetta væri eitthvað sem ég ætlaði einhvern timana að gera. Finnst nefnilega afskaplega leiðilegt að skrifa sterialseruð jólakort og kvitta fyrir. Andin kom svo yfir mig á föstudagskvöld J Afgreiddi öll kortin á einu bretti og límdi þau aftur svona til öryggis. Þannig elsku vinir þig fáið einsktök jólakort frá mér þetta árið... og kanski það sem eftir er því mér fannst þetta hreint ljómandi skemmitlegt. Þar sem ég var ekki búin að kaupa eina einustu jólagjöf var laugardagurinn tekin frá og stefnan tekin á laugarveginn. Mjög kætandi og skemmtilegt. Dró Rúnar búð úr búð. Hann var einskaklega þolimóður og ég stend í þeirri trú að hann hafi haft jafn gaman af þessu eins og ég :P ! Enduðum miðbæjarosmósuna á Sólon. Hitti gamla manninn þar... skrtytið.. hef ekki séð hann lengi...... en miðbæjarröltið var mjög ljúft.. gerðum svo þau regin mistök að detta í hug að fara í kringlunna!!!! Eftir um það bil 8 min þar var búið að sjúga allan kraft úr okkur og flyttum okkur út. Algerlega með ofnæmi fyrir þessum stað á þessum árstíma en fer samt alltaf þangað aftur og aftur... djöblin! Klæddi mig svo upp, setti glimmer á mig og skellti refs-kvikindinu utanum hálsin á mér... hrikaleg skvísa.. og skellit mér í bæinn um kvöldið. Ofsalega ljúft kvöld. Sunnudagurinn var fyrsti svona jóla-tilhlökkunar dagurinn sem ég finn fyrir þessi jól. Við keyptum jólatréið og settum það upp, bökuðum smákökur og vorum að jólast í allan daginn og fram á kvöld. Rosalega fegin að þetta var allt gert í rólegheitunum og ekkert stress eða panikk yfir hlutum sem skipta akkurat engu máli. Ég er mjög sátt.

12.17.2004

Um Saltfisk og jibbý skibbý

Fór í stórkostlega saltfisk veislu í gær! sólþurkaður af ömmu :) Verð samt alltaf að fá mér seríos á eftir.. veit ekki afhverju!! en omg hvað þetta var ljómandi. Komum svo við á H9 á leiðinni heim, aðeins að knúsa Gvuns enda var dýrið komið með þvílík fráhvarfs einkenni! Gamla beyglan er biluð. Hún heldur því fram að hún sé með klemda taug í olboga eða öxl! Þetta er svo skrytin tilfining.. fæ svona rafstrauma í fingurnar!!!! Þetta er alls ekki skemmtilegt/gott tilfining eins og kanski við mætti búast!! smá fútt :I þetta er bara óþægilegt!!! Hvernig finnst þér þessi ályktun? Annars er merkilegur dagur í dag :) Er að fara að skrifa undir kaupsamninginn .. einstök hamingja sem á eftir að fylgja því! Sannar dömur myndu sennilega segja jibby skibby og rétt lyfta annarri hendinni í sigurskyni og svo klappa... svona vííí klapp... sjáum til hvernig viðbrögð gömlu verða....

12.16.2004

Magnaður andskoti

Morning bagle! Það sem af er af vikunni!!...hhmmm ... Við erum að komast inní reglurnar í skvassinu og erum að sjáfsögðu þá farnar að keppa! Ég tapa alltaf en spiritin er hár. Karlhormónarnir eru amk að brjótast fram í okkur í leiknum, höfum að vísu ekki grítt spaðanum í hvor aðra né í veggi en við finnum báðar fyrir aukningu á heimskulegum óviðráðanlegaum reiðis köstum þegar illa gengur!
Mikið er myndin Starsky and Hutch mögnuð. Á þriðjudaginn var annar í horfun á henni. Hreynlega andaðist úr hlátri. Einstaklega hrifin af þessari gerð af húmor! Ekki margar myndir sem ég nenni að eiga annan í horfun á ... en þessi .. verð eiginlega að eiga hana. Dyrið skellti sér á bingó í gær og kom heim með svona mest ljómandi expresso vel með öllum græjum, eg er reglulega hrifin af svona tækjum :) .... og jú.. svo eitt.. svona í tilefni jólanna og hátíðarinnar framundan þá lét ég klippa lubbann, fékk mér hanakamb og rokka bara fínt eftir það. Dýrið fór ekki að gráta eins og þegar ég gerði þetta síðast. Sennilega farin að venjast svona uppátækjum hjá mömmu gömlu! Síðast var hún sem sagt eyðilögð þvi hún vildi meina að mömmur væru ekki pönkarar... mikil grátur! Það eina sem skelfir mig eftir þetta er að núna þegar hárið er orðið svona stutt þá er eg alveg eins og mamma. Ekki það sé leiðum að líkjast en þetta er bara móttó hjá öllum beyglum !!!! Magnaður andskoti!

12.14.2004


Klikkar aldrei Posted by Hello

gott jamm

Núna í svartasta skammdeginu er þá ekki gott að velta því fyrir sér hvað er gott? Fyrsta sem mér dettur í hug eru eyrnapinnar.. þeir eru góðri, smjör með flatköku er gott, þvo sér lengi um hendurnar þegar þær eru við frostmark, norðurljós og stjörnur,kúr, sumarbústaður á kafi í snjó, inniskór og ullasokkar, comics sendingin, bækur, gemsin minn, matur, ibufen, tónlist, nudd, heiturpottur, skvass-spaðin sem ég ætla að fá í jólagjöf, kossar, vetlingar, rigning...eða bara veður almennt ... það er gott..merkilegt hvað maður þarf lítið til að gleðjast, og og ú ú ú msn það er mest ljómandi og suðusukkulaði.

12.13.2004

:)

... sá þetta koment á bloggsíðu... er búin að vera í kasti yfir þessu....

EN, ef maður vinnur sem fulltrúi á Nings, þá er maður Ningsfulltrúi, og ef maður er alltaf í kreísí stuði, þá er maður StuðNingsfulltrúi.


Þetta er sem sagt ég.....You're Mr. Silly! Hurrah! :D.... hhmmmm Posted by Hello

Which of the Mr. Men characters are you?

12.11.2004

Um að gera sér glaðan dag

Af eitrunin er að skyla sér og ég er öll að koma til :) Engin smá munur núna bara á 2 dögum ;I Vinkona mín er að fara í doktorsnám og var sem sagt í dag að ljúka við þessa próftörn sem maður þarf að taka til þess að skyla með umsókninni :) Því höfum við tekið fram lakk skóna, pússað þá og ætlum á dansæfingu í kveld, gera okkur glaðan dag!

12.10.2004

Svona fór það..

Ég held að þessi ofvirkni brandarar hjá mér séu hættir að vera fyndnir. Alltaf fundist það frekar sniðugt hvað maður er virkur.. og stundum of-virkur en hef ekki tekið þessu svona persónulega fyrr en nú! Var búin að ræða þennan vítamín og prótein-kikk-lýða betur-allt-gott-kúr sem ég ákvað að fara á! Núna 9 dögum seinna er eiginlega hægt að segja að ég hafi sofið í 9 daga. Sem sagt svona orku-búst virkar öfugt á mig! Hvað segir það manni? Hvað fá ofvirku börnin við sínu? ..... sem sagt ekkert voðalega fyndið lengur!!!! eða jú :-)
Ég varð sem sagt að hætta á þessu öllu saman. Hætti í gær og er svona hægt og þétt að skríða saman eftir ósköpin! Mikið rosalega er ég búin að vera þreytt og ég hef sofið endalaust! Við erum alveg að tala um 12 tíma á sólarhring! jahá svona fór þessi ná-í-meiri-orku-kúr!!! Ekki nóg með að ég hafi verið þreytt heldur hef ég greinilega eitthvað ónæmi fyrir einhverju af þessu þvi ég varð bara ljótari með hverjum deginum! Sem er ekkert sérstaklega gott né uppörfandi þar sem tilgangurinn var akkurat annar...frískleiki og orka!!! Merkilegur andskoti! en þetta er samt fyndið ! ........þá er bara að finna sér eitthvað annað að gera..... hhmm hugs hugs.......

12.09.2004

Afi pafi og dýrið

Það eru 72 ár á milli þeirra en þau eru bestu vinir og skemmta sér yfir sömu hlutunum. Þau hafa verið félagar í níu ár. Frá þvi það var hægt að skorða hana þannig í vagninum að hún gat setið þá fór hann með hana út í bílskúr þar sem hann var að vinna. Svo spjallaði hann við hana um allt milli himins og jarðar á meðan hann gerði að bátnum eða hnýtti upp krókanna fyrir handrúllunna. Auðvita var svo tekið kaffi klukkan hálf fjégur eins og hann segir. Eftir hvern sopa sagði hann við dýrið: það hressir bragakaffið... enda var þetta fyrsta setninginn sem kom uppúr henni. Fyrst kom “allt búið”.. enda ekki við öðru að búast frá bumburassinum og svo þetta! Mjög eðlilegt fyrir þessa 1 árs dömu. Þegar maður er lítill þá skiptir máli fyrir mann að maður fái mat sem maður getur melt. Þetta par var ekki sammála þvi. Þegar dýrið var farið að geta ýtt sér áfram í göngugrindinni var hún eins og píla fram í eldhús ef hún heyrði afa kalla. Hann réttara sagt tísti á hana, svona eins og fuglamamma. Þá var hann að fá sér að borða, tugði allt og gerði klárt! Litla dýrið skaust strax við hlið hans og opnaði munninn eins og fuglsungi... og fékk sinn skammt!! Ég var fyrst að skamma hann fyrir þessa villimennsku og hvað þetta væri ógeðslegt en ... Hann vildi meina að þetta hafi greinilega ekki gert mér neitt íllt þegar ég var lítil því væri þetta í lagi! Hvað gat maður sagt þá? Fyrst fóru þau alltaf í göngutúr saman á meðan hún var í vagninum en svo þegar aldurinn færðist yfir þann gamla hófust rúntarnir á bryggjunna. Þá voru keyptar mandarínur og epli og farið og skoðað goggurnar, sem breyttust svo í sílamáfa, hettumáfa, ritur, fíla og hrafna og boggurnar sem breyttust í Ármann! Allir bátar urðu afa bátar: Ármann. Hún hefur verið mikið hjá þeim og það heyrist greinilega á málfari hennar. Hún slær út svefnbekkinn og stillir á vini sína í símanum!
Afi fór í aðgerð á auganu í morgun. Þegar við fórum seinni partin til þeirra sat dýrið inni hjá honum og strauk á honum höndina á meðan hún sagði honum helstu fréttir dagsins og hvað væri svona það helsta sem væri að gerast í bratz heiminum líkaJ Eftir það fór hún fram og smurði handa honum brauð og náði í kaffi og færði honum. Passaði hann eins og hann hefur alltaf passað hana. Mér þykir svo vænt um að hún eigi þetta samband við langafa sinn.

Ljúft

Dýrið er búið að vera lasið mest alla vikunna. Það er svoldið ljótt að segja það en mér hefur fundist það svo fínt! það hefur verið endalaust notalegt að vera heima! Geta gert svona heimahluti sem hafa setið á hakanum í einhvern tíma! Papprírsmálin ganga hægt en þetta er allt að koma. Samkvæmt samningnum fell ég á tíma í dag en fasteignasalin sagði að ég þyrfti nú ekkert að panikka yfir þessu. þetta myndi reddast!

12.06.2004

Villimennska

Var hjá ömmu og afa í hádeginu. Eftir kaffi og spjall bað afi mig um að aðstoða sig við að skipta um umbúðir á fingrinum á sér. Sagðist vera með smá skrámu. Kom í ljós að hann hafi næstum tekið stykki framan af fingrinum með hníf.... þannig hann klippti bara restina af!!!! Mér þótti sjálfsagt að hann færi til læknis þar sem þetta er alveg 4-5 spora gat og fingurinn er þegar orðin hvítur... en nei.. hann hofði á mig eins og ég væri kreisý! þetta er bara skeina!! Þar sem eg sat og dundaði mér við að búa um fingurinn fékk ég sögunna á bak við skeinuna. Hann var að skera niður mat fyrir fuglanna sem eru alltaf í garðinum hjá þeim.. og að sjálfsögðu lét hann stykkið úr fingrinum bara vera í matarskammtinum og gaf fuglunum það! villimannslegt? hhmm

12.05.2004

Sunnudagur og Smjör

Jólagjafa-innkaupin hófust í gær. Að sjálfsögðu finnst mér skemmtilegt að kaupa gjafir handa þeim sem mér þykir vænt um en orðin Smáralind og Kringlan gefa mér hroll á þessum árstíma. En hjá þvi verður ekki komist þannig þá er bara að breyta hugarfarinu. Ákvað það í gær á leiðinniu í smáralindina að pirrast ekki yfir neinu og gera þetta bara kæruleysislega 8) og viti konur! þetta virkar svo fjandi vel! Ekkert stress og þetta var bara skemmtilegur dagur!
Þar sem ég var komin með regluleg miðbæjardjamm og haga-mér-fávitalega frákvarfseinkenni ... við erum alveg að tala um 3-4 helgar...og búin að sannfæra mig um að þetta væri bara skemmtilegt og hollt fyrir konur eins og mig! Þá var skellt sér á lífið með glimmer og gloss :) Það var alveg skemmtilegt og fint... . Var með myndavélina með mér,,, fróðlegar myndir þær! mikið af fólki sem eg þekki ekki neitt og ég að sjálfsögðu með á öllum myndunum! Svo er frekar sniðugt að ég tók nokkur video! muna að gera það aldrei aftur! Og eftir að hafa verið á vítamín prótein kúr í nokkra daga þa var pylsan á leiðinni heim guðdómleg, næstun jafn góð og smjör :)

12.04.2004

Never ending story......

Ég á amerískan vin sem er á svipuðum aldri og ég . Ég þekki hann ekkert rosalega vel en samt við erum alveg vinir og heyrumst svona einu sinni í viku. Við deilum hugsunum, líðan og tilverunni eins og hún getur verið bæði brölt, hólar og skyr. Þrátt fyrir ungan aldur hefur hann verið giftur í 12 ár. Mér finnst eins og ég hafi heyrt söguna hans áður. Hann er fastur í tiverunni, en er að reyna að vera hamingjusamur en ég held að hann viti ekki í hvorn fótin hann á að stiga eða hvert hann á að horfa. Svo margt gott og svo margar góðar minningar sem halda honum á þeirri braut í lifinu þar sem hann er en það eru ennig of margir spottar sem eru að toga hann útaf brautinni. En það er svo rosalega erfitt að fara útaf brautinni. Svo mikil áhætta! Hver er rétta brautin? Er maður nægilega sterkur til að standa og falla með ákvörðunum sem maður er ekki viss með? Ég skil hann að vissu leyti, þetta er rosalega erfið ákvörðun að umturna lífi sínu með svona stórum breytingum og svona fáum orðum. Ætli maður verði ekki að melta þetta með sér í marga mánuði og svo koma orðin bara.. ekki að maður taki meðvitaða ákvörðun heldur að einn daginn heyrir maður sjálfan sig segja lausnina og meina hana... en það er ekki þar með sagt að það hafi verið planað og alls ekki úthugsað! Maður stendur sig að því að hafa verið svo fastur í hugsuninni sjálfri að maður fattar að maður hefur ekki hugsað lengra en hugsunin sjálf, hvað þá um afleiðingar eða hverngi lífið verður á eftir!... þetta bara kemur og maður verður svo sáttur með tímanum! Er nokkuð hægt að vera ósáttur eða sjá eftir? maður veit bara hvernig hlutirnir þróast á þeirri braut sem maður er á... veit ekki hvernig það hefði orðið ef öðruvísi hefði farið. Sjálfsögðu er hægt að velta þvi fyrir sér en sér maður þá ekki bara ljóma af einhverri góðri braut sem myndi ekki styðjast við veruleikan? Því maður getur ekki vitað það. Þá hefur það engan tilgang!! En þetta er það sem við lifum og hrærumst í.. á eg .. á ég ekki.. núna.. hvenær.. hvernig.. og í öllu þessu hvernig heldur maður geðheilsunni nokkurnvegin í bylgjum í kringum það sem kallast norm? Enn hinn póllinn er að þetta er einmitt það sem gerir lífið tilbreytingasamt og spennandi verkefni til að takast á við! Finna fyrir sigrum og ósigrum gerir okkur að þvi sem við erum.

12.03.2004

Að hlaupa á veggi.....

Mig langar í jólaglögg mmmm mondlur og rúsinur og fullt af rauðvini... heitt! Það er svo guðdómlegt í réttu magni! Varð að koma þessu frá mér ha ha! Enda er ég búin að komast að þvi.. eða réttara sagt ég hef fundið réttlætingu fyrir þessu helgarbrölti á mér. Vegna þess að það er ekkert endalaust stuð í vinnunni hjá mér og ég hef akkurat fullt af engum til að tala við þa bara verður maður að fá að sleppa sér til að halda geðheilsu og svo að félagslegt sjálfsmorð verði ekki framið! :) gott eh? veit það ekki ... en nægir mér að sinni :)

12.01.2004

Miðvikudagur

Prósessin gengur vel og það stefnir allt í að þetta gangi upp. Ætti að geta skrifað undir eftir helgi :) Er þegar farin að skipta út innréttingum og brjóta niður veggi í huganum! Er ekkert smá spennt yfir þessu og hlakka ennþá meira til :) Ákvað að taka mig í gegn og byrjaði í dag á vítamínkúr! Ekkert hollywood kjaftæði bara dúndurskamtur af vítamínum og próteini. Búin að fara í allskynns mælingar og læti. Fá prógram hjá sæta þjálfaranum og eg er að vona að þetta gefi mér meiri orku! Þarf svo á þvi að halda!! :)
Damien Rice er í algeru uppáhaldi hjá mer þessa daganna... just love him.. verðið að heyra í honum :)